<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, maí 31, 2007

**KATRÍN JÓNSDÓTTIR** 













JEY JEY JEY JEY JEY!!!

jibbí cola!! jæja þá er það síðasta afmælisKONAN í mánuðinum og jafnframt sú elsta en hún fagnar ÞRJÁTÍU ÁRUM í dag!!
Katrín er konfektmoli okkar allra og gleður eyru og augu okkar á hverri einustu æfingu, með skemmtilegum orðum,setningum og ógleymdum ullarnærfötum!
Kata fagnar deginum með því að spila miðvörð með liði sem heitir ÍSLAND á móti liði sem heitir Grikkland, ég býst fastlega við grjóthörðu skallamarki frá gömlu og jafnvel að hún splæsi í eina rennslu í tilefni dagsins!
Katie we love you, plz haltu áfram að vera leiðtoginn okkar um ókomna tíð :)
***TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ***
ps.Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Kata hún á afmæli í dag,hún er 30 ára í dag, hún er 30 ára í dag, hún er 30 ára hún Kata hún á afmæli í daaaaaaaaag!
pps. Kata og Makan eru hjón og
kyssast uppá títuprjón



miðvikudagur, maí 30, 2007

MálFríður Erna 


Já afmælisruglið heldur áfram!!

EN Málfríður WHO??

jú fáir þekkja Fríðu okkar sem Málfríði þrátt fyrir það þá er það skírnarnafn stúlkunar, dagurinn í dag er merkilegur fyrir þær sakir að Fríða kom öskrandi í heiminn, 52 cm að lengd og 3990gr!


Fríða er þekkt fyrir einstaka förðunarhæfileika, vinalega tækni og að kunna nöfn á mörgum læknum :)


***TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ GAMLA GEIT!***
ps. Hún er 23 ára í dag,hún er 23 ára í dag,hún er 23 hún Fríða,hún er 23 í dag
pps. Kærastinn hennar er ÞRJÁTÍU ára

slummslummslummslummslummslummslumm 


Já Orri heldur uppi heiðri rauðhærða og sýnir kynbræðrum sínum hvernig á að gera þetta:
-fara nirðríbæ
-finna stelpu/r
-fara í SlUmM
-LÁTA NÁ SÉR Á FILMU..
-láta eins og þetta hafi verið PLATkoss
-og hverfa svo 4 mín eftir theBIGkiss...hmmmm
amature amature amature

þriðjudagur, maí 29, 2007

oobbbbooosííííí 


Hann er hössler tekur trylltan dans þerann tjúttar flykkjast allar tjedlingar til hans..
réttupphöndsemvillsjámyndaforraveraísluXXX
svona er að geta ekki haft hemil á sér DOWNTOWN!!
GO REDS

laugardagur, maí 26, 2007

Afmælisbarn dagsins.... 




Jú það er víst eitt afmælisbarn í famelíunni...það fer ekki mikið fyrir henni og oft læðist hún meðfram veggjum valsheimilisins í von um að engin muni taka eftir henni...en henni verður nú ekki kápan úr því klæðinu.....(segir maður annar ekki kápan úr klæðinu??) Lítill fugl hvíslaði því nebblinlega að mér að hún ætti afmæli í dag! TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ LINDA! Enjoy it!:)







6-0 á nýliðum ÍR 

Í gærkvöldi sigruðum við nýliðana í landsbankadeildinni 6-0. Leikurinn var spilaður í sól og smá golu en það var samt frekar kalt í veðri. Við byrjuðum leikinn að krafti og sóttum stíft en náðum þó ekki að skora strax. Fyrsta mark leiksins kom eftir að Ásta Árna átti fína sendingu á Margréti sem var ein á auðum sjó fyrir framan markvörð ÍR-inga og lyfti boltanum skemmtilega yfir hana og staðan var orðin 1-0 okkur í hag. Annað mark leiksins var stórglæsilegt. Við fengum hornsyrnu og ÍR-ingar voru mjög lengi að skipuleggja sig. Margrét tók spyrnuna og sendi stutt á Guðný og fékk hann tilbaka og smellti boltanum uppí samskeytin fjær, virkilega glæsilegt skot og staðan orðin 2-0! Þriðja mark leiksins kom eftir hreint frábært spil. Dóra María vann boltann og sendi hann á Guðný sem átti frábæra sendingu á Vönju sem keyrði upp kantinn og renndi boltanum út á Margréti sem kláraði færið og staðan því orðin 3-0 og Margrét komin með þrennu!!
ÍR átti eitt gott færi í fyrri hálfleik þegar þær áttu mjög gott sláar skot en fleiri færi fengu þær ekki.
Staðan var 3-0 í hálfleik og Beta gerði eina breytingu á liðinu Nína kom inná fyrir Kötu fyrirliða en hún er tæp í læri.
Í seinni hálfleik stimplaði Nína sig inní leikinn þegar hún skoraði eftir góða stungu frá Dóru Maríu. Dóra María var öll í stoðsendingunum en hún átti frábæra sendingu á Rakel sem komst ein inn fyrir hægra megin og skoraði með snöggu skoti á nærstöng og staðan orðin 5-0. Eftir þetta skiptu ÍR-ingar um markvörð en okkur til dálitlar undrunar fór markvörður liðsins í bakvörð og einhvers konar færsla varð á liðinu – þetta ferli tók um 5 mínútur. Það kom ekki að sök því Vanja skoraði sjötta og síðasta mark okkar eftir hræðileg mistök í vörn ÍR-inga eftir að Guðný átti fína fyrirgjöf fyrir markið. 6-0 sigur því staðreynd.
ÍR stúlkur eiga samt hrós skilið en það sást að þær voru virkilega að reyna að spila boltanum og er greinilegt að þær eru með mun betra lið núna en þær telfdu fram í vetur. Þær fengu eitt dauðafæri í lok leiksins þegar þær áttu skalla sem fór naumlega yfir markið.
Fínn leikur að okkar hálfu en samt klúðruðum við alltof mörgum færum í seinni hálfleik þar sem við hreinlega óðum í færum. Margrét stóð sig vel með þrjú mörk en hefði hæglega getað sett þónokkur í viðbót, Dóra María var dugleg á miðjunni að leggja upp mörk og færi fyrir félaga sína. Sif átti fínan leik og var sívinnandi og Fríða var dugleg í “skítavinnunni” og hélt boltanum vel. Pála átti aftur góðan leik í vörninni en hún vann virkilega marga bolta bæði í loftinu og í tæklingum. Allar þrjár skiptingarnar í gær höfðu góð áhrif á leik liðsins en Hallbera, Nína og Anna áttu allar fínar innkomur! Það má því segja að liðsheildin hafi verið allsráðandi í gær enda var sigrinum fagnað með stæl seinna um kvöldið.
Nú kemur smá pása á leikjum þar sem landsliðið er að fara til Grikklands en næsti leikur okkar í deildinni er ekki fyr en 8.júní.
Liðið: Gugga, Ásta (Anna), Pála, Guðný, Sif, Fríða, Kata (Nína 46.), Dóra María, Rakel (Hallbera), Vanja og Margrét Lára.

fimmtudagur, maí 24, 2007

Íslandsmótið heldur áfram - ÍR á morgun 


Á morgun, föstudaginn 25.maí klukkan 19.15 sækjum við ÍR heim á ÍR-völl í annarri umferð landsbankadeildar kvenna. Þetta er þeirra fyrsti leikur í deildinni og má því búast við hörkuleik annað kvöld. Það fara síðan 3 aðrir leikir fram á sama tíma en þeir eru: Þór/KA - Breiðablik, KR - Fjölnir og Stjarnan - Keflavík. Hér er mótið í heild: http://ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=14844

Við viljum hvetja alla á völlinn og styðja okkur til sigurs!


ÁFRAM VALUR!!

Blue Team 

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn sem mætir Grikkjum ytra 31. maí næstkomandi. Þetta er fyrsti leikur liðsins í undankeppni fyrir EM 2009.
Þóra Helgadóttir gefur ekki kost á sér í þennan leik vegna vinnu sinnar en systir hennar, Ásthildur Helgadóttir, kemur að nýju inn í hópinn eftir meiðsli.

Við eigum alls 8 leikmenn í hópnum: Kata, Margrét, Dóra María, Ásta, Rakel, Guðný, Gugga og Sif - til hamingju allar

Hér er hópurinn í heild sinni: http://www.ksi.is/media/landslid/akvenna/A_kvenna_Grikkland_mai_2007_hopur.doc
ÁFRAM ÍSLAND!!

Anna G 







já afmælisbörnin í VAL eru þó nokkur í Maí, ágúst mánuður virðist vera með þeim vinsælli hjá foreldrum stelpnanna í VAL
en

í dag á Anna Garðarsdóttir afmæli.. eg hringdi í Gumma og hann sagði að hun væri að verða 19 þannig að eg vona að það stemmi.. :)


Anna hefur skemmt mér og fleirum með áhugaverðum hlaupastíl,fjölbreytilegum háralit og síðast en ekki síst sögum af íslenskum hljómsveitarmeðlimum :)





--- TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ---












HAVE A GOOD ONE ANNIE

þriðjudagur, maí 22, 2007

5-1 sigur á Stjörnunni í fyrsta leik! 

Í kvöld sigruðum við Stjörnuna með fimm mörkum gegn einu. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru mjög breytilegar. Strax í upphitun byrjaði að snjóa og síðan hvessti allsvakalega. Þegar leikurinn byrjaði síðan var hætt að snjóa og komið sólskyn og nánast logn.
Fyrsta mark leiksins kom á 13.mínútu en Sandra markvörður stjörnunnar átti útspark sem við unnum og boltinn fór á Rakel sem átti frábæra sendingu á Margréti Láru sem slapp ein inn fyrir og sólaði Söndru og renndi boltanum í netið. Eftir markið réðum við algjörlega gangi leiksins og sköpuðum okkur fullt af færum sem við náðum þó ekki að nýta og staðan var ennþá 1-0 í hálfleik. Rakeli var skipt útaf á 27.mínútu vegna meiðsla og hennar í stað kom Nína Ósk en hún átti heldur betur eftir að láta til sín taka.
Fyrri hálfleikurinn einkenndis dálítið af því að það vantaði ávallt herslumuninn í að klára sóknirnar almennilega en það var virkilega erfitt að koma boltanum fyrir sig þar sem boltinn var bókstaflega “all over the place” á rennblautum og ósléttum vellinum.
Strax í byrjun seinni hálfleiks á 48.mínútu fengum við heldur betur vatnsgusu í andlitið en dómarinn ákvað á einhvern óskiljanlegan hátt að reyna að jafna leikinn og gefa Stjörnunni vítaspyrnu. Við viljum meina að ekki hafi leikmaður Stjörnunnar einungis verið rangstæður heldur líka bókstaflega ekkert að því hvernig Fríða tæklaði boltann í horn, en vítaspyrna var niðurstaðan. Harpa Þorsteinsdóttir fór á vítapunktinn og skoraði úr spyrnunni og staðan orðin 1-1. Þetta hleypti auknu lífi í leikinn og Stjarnan komst aðeins betur inní leikinn. En það var þó á 58.mínútu sem að Margrét skoraði sitt annað mark eftir að hún fékk sendingu frá vinstri, snéri laglega á varnarmann Stjörnunnar og setti boltann í fjærhornið. Einkar laglegt mark og staðan orðin 2-1. Stuttu síðar opnaði Nína Ósk markareikning sinn í sumar með góðu marki eftir klafs í teig Stjörnunnar. Staðan orðin 3-1 og þá var komið að þætti dómarans í annað sinn. Við áttum hornspyrnu frá hægri og lítið sem ekkert virtist vera í gangi í teignum en dómarinn flautaði í flautu sína og benti á vítapunktinn. Svo virtist vera sem að hann væri að “leiðrétta” vítið sem hann gaf Stjörnunni fyrr í leiknum. Sumar vildu meina að boltinn hafi farið í hendina í leikmanni Stjörnunnar en það var þá allavega ekkert áberandi. Margrét Lára fór á vítapunktinn og skoraði örugglega og staðan því orðin 4-1 og sigurinn orðin ljós. Dóra María kláraði þetta svo fyrir okkur með fallegasta marki leiksins en hún fékk langa sendingu sem hún tók á kassann og smellti honum með vinstri uppí þaknetið og lokatölur leiksins urðu 5-1. Hallbera og Linda fóru inná fyrir Guðný og Sif í seinni hálfleik.
Gríðarlega mikilvægur sigur í höfn og mikill léttir að vera komin með 3 stig eftir fyrstu umferð. Pála átti mjög góðan leik í vörninni og langt síðan maður hefur séð eins margar góðar tæklingar í sama leiknum, sóknarmenn Stjörnunnar réðu ekkert við hana. Margrét, Nína og Dóra María kláruðu þetta síðan fyrir okkur sóknarlega en í heild sinni stóð liðið sig nokkuð vel en fyrsti klukkutími leiksins bar með sér mikinn vorbragðskeim. Við hefðum klárlega getað bætt við mörkum en engu að síður settum við 5 stykki gegn einu marki stjörnunnar sem verður að teljast virkilega góður sigur.
Núna erum við komnar með fyrstu 3 stigin í hús og Íslandsmótið loksins byrjað af alvöru!!
Liðið: Gugga, Ásta, Pála, Fríða, Sif (Linda 85.), Guðný (Hallbera 71.), Kata, Vanja, Dóra María, Rakel (Nína 27.) og Margrét Lára

mánudagur, maí 21, 2007

ÍSLANDSMÓTIÐ HEFST! Valur - Stjarnan 

Í dag er okkar fyrsti leikur í mótinu sem allir hafa beðið eftir! Íslandsmótið er að byrja!! Fyrsti leikur okkar verður á Valbjarnarvelli við Stjörnuna í dag, 21.maí kl.19.15. Á sama tíma er einnig Keflavík - Þór/KA og Fjölnir - Fylkir.
Hér er mótið í heild: http://ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=14844
Ég hvet alla til að mæta á völlinn og styðja okkur til sigurs!!!!
ÁFRAM VALUR!!!!
Síðan ætla ég að minna á hádegismat, serrano, kringlan 12.00 (12.10 Marco) og í leiðinni ætla ég að þakka kvennaráðinu enn og aftur fyrir virkilega góðan kvöldverð.

föstudagur, maí 18, 2007

Guðbjörg Gunnarsdóttir 




Já kæru vinir nú gleðjumst við..!

Besti markmaður landsins á afmæli í dag...can I get a HAAAAALLLLLELUJAH!
Já stelpan er orðin 22 ára gömul þó hún líti ekki út fyrir að vera deginum eldri en 18.
Guðbjörg hefur lengi verið þekkt fyrir frábæra kokkteila, áhugaverða stafsetningu og síðast en ekki síst ótrúlega hæfileika með tölur.

Njóttu dagsins kæri besti markmaður (",) (",)

****TiL hAmInGjU mEð DaGiNn****








fimmtudagur, maí 10, 2007

8-1 Rúst í kvöld – Við skoruðum öll mörkin.... 


Við vorum ekki lengi að skora á móti Breiðabliki en strax á 4.mínútu átti Rakel góða fyrirgjöf frá hægri og sendi boltann á Margréti sem var alein í vítateig breiðabliks og skoraði örugglega og staðan orðin 1-0. þrem mínútum síðar komst Margrét aftur í færi og var brotið á henni innan teigs og vítaspyrna dæmd. Margrét skoraði síðan sjálf úr vítinu og staðan því 2-0 eftir um 7.mínútna leik. Við gjörsamlega náðum að spila blikana sundur og saman og þær voru í eltingarleik nánast allan tíman. Þær fengu þó aukaspyrnu á cirka 20.mínútu og Fríða varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net. Nær komust blikar þó ekki! Margrét Lára var alls ekki hætt því þriðja mark hennar kom eftir frábært skot utan teigs nánast í samskeytin. Við héldum síðan áfram að skora mörk úr öllum regnbogans litum og náðum að setja nokkur sérlega glæsileg mörk. Fjórða markið kom þegar Rakel komst fyrst í gegn og markvörður Blika varði, Sif náði frákastinu og átti frábæra fyrirgjöf á Vönju sem sko hamraði boltann hausnum í hornið – stórglæsilegt mark og staðan orðin 4-1. Fimmta mark okkar kom síðan eftir hreint frábært spil. Margrét var með boltann vinstra megin og spilaði á Guðný sem sendi aftur á Margréti, hún renndi boltanum fyrir markið og þar kom Rakel sem setti boltann í netið! Sjötta mark okkar skoraði Margrét nánast uppá eigin spýtur, fékk boltann vinstra megin og keyrði bara á vörnina og komst alla leið að markinu og renndi boltanum síðan í hornið og staðan orðin 6-1 sem voru ótrúlegar hálfleikstölur leiksins!
Í hálfleik voru skiljanlega ekki gerðar neinar breytingar á liðinu sem var hreint út sagt að spila frábærlega og langt síðan við höfum náð upp eins góðu spili og í kvöld. Þrátt fyrir að staðan væri þarna 6-1 fengum við fullt af færum og við vorum mun nær því að bæta við mörkum en blikarnir að minnka muninn.
Í seinni hálfleik róaðist leikurinn aðeins og náðum við “bara” að skora tvö mörk til viðbótar. Margrét Lára skoraði mark nr. 7 og hennar fimmta mark í leiknum eftir hreint frábært spila upp hægri kantinn Rakel (að mér minnir) renndi boltanum síðan fyrir markið þar sem Margrét var enn og aftur alein í teignum og átti ekki í erfiðleikum með að setja boltann framhjá markverði blika í netið. Síðasti naglinn í kistu breiðabliks var síðan áttunda mark okkar en Kata átti sendingu fyrir markið og boltinn endaði hjá Guðný sem hamraði honum uppí þaknetið. 8-1 RÚST staðreynd.
Þetta var hreint út sagt frábær leikur og mjög langt síðan liðið hefur náð að spila boltanum jafnvel eins og við gerðum í kvöld. Mörkin voru flest hver öðru flottara og er þetta frábært veganesti fyrir fyrsta leik okkar í Íslandsmótinu sem er 21.maí á móti Stjörnunni. Það er ekki hægt að lýta framhjá því að Margrét Lára átti frábæran leik, skoraði alls 5 mörk þrátt fyrir að hafa verið tekin útaf á 60.mínútu! Annars stóðu nánast allir sig mjög vel í leiknum og greinilegt að 1x snertingarspilið er að skila sér núna út í leikina:)
Liðið: Gugga, Ásta, Pála, Fríða, Guðný, Sif (Andrea), Vanja (Hallbera), Kata, Rakel, Nína og Margrét Lára (Linda)

þriðjudagur, maí 08, 2007

Landsliðshópurinn valinn fyrir leikinn gegn Englandi! 


Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt 18 manna hóp er mætir Englandi í vináttulandsleik ytra 17. maí nk. Leikurinn fer fram á heimavelli Southend United, Roots Hall.
Leikurinn er lokaundirbúningur fyrir fyrsta leik liðsins í undankeppni fyrir EM 2009 en leikið verður við Grikki ytra 31. maí.

Við eigum alls 8 leikmenn í þessum hóp: Kata, Margrét Lára, Dóra María, Ásta, Rakel, Guðný, Gugga og Sif - til hamingju allar! Hér er hópurinn í heild sinni: http://ksi.is/media/landslid/akvenna/A_kvenna_England_mai_2007.pdf


ÁFRAM ÍSLAND!



Meistarakeppni KSI á morgun! 


Á morgun, miðvikudaginn 9.maí fer fram leikur "meistarar-meistaranna" en þá spila Íslandsmeistarar á móti bikarmeisturum síðasta árs. Við spilum á móti Breiðabliki sem lennti í 2.sæti í fyrra þar sem við tókum eins og flestir muna eftir báðar dollurnar í fyrra. Í fyrra var það einmitt öfugt, breiðablik hafði unnið tvöfalt og spilaði við okkur sem lenntum í 2.sæti og þær unnu okkur örugglega í þeim leik 5-1, http://www.ksi.is/mot/motalisti/leikskyrsla/?Leikur=129102. Við höfum semsagt harma að hefna!

Leikurinn byrjar kl.20.00 og verður spilaður í Egilshöll!


ÁFRAM VALUR!!

mánudagur, maí 07, 2007

Nýr meðlimur í "stjórnar" fjölskylduna 

Eva Halldórs kvennráðsmeðlimur og Björgvin Ingi maður hennar hafa nú getið af sér son.

Engill eins og við kjósum að kalla hann þangað til annað kemur í ljós kom í heiminn 1.maí.
og hér að neðan má sjá mynd af gullmolanum.




Við óskum nýbökuðum foreldrum að sjálfsögðu til hamingju með frumburðinn ... endalaust af börnum allt í einu í kringum liðið.

Valurwoman gengið :)


sunnudagur, maí 06, 2007

Myspace stúlkan 2007 

Við kynnum til leiks keppendur í keppninni Myspace stúlkan 2007

Slagorð keppninnar er að sjálfsögðu: TAKK fyrir ADDIÐ :)

Anna Garðarsdóttir 19 ára Reykjavík (myspace.com/annagr)
Áhugamál Önnu eru m.a. að anda, lesa, elska, ferðast og að koma of seint.
Anna mælir sérstaklega með bókinni Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn
og hún hlustar mikið á gleðisveit Ingólfs.
Status : SINGLE
Kjósið Önnu í síma 900-1018


Andrea Ýr Gustavsdottir 16 ára Reykjavík (myspace.com/andreayr)
Áhugamál Andreu eru m.a. að vera brún, að vera brúnni, að vera brúnust og að
vera í hvítum fötum svo fólk sjái hvað hún er brún.
Andrea hlustar á söngskóla Siggu Beinteins en Andrea er eins og allir vita
barnið í hópnum.
Status: SINGLE
Kjósið Andreu í síma 900-1019


Ása Aðalsteinsdóttir 19 ára Kópavogi (myspace.com/asadogg)
Áhugamál Ásu Daggar eru m.a. vinirnir, hesturinn hennar, fótbolti og skallatennis.
Mottóið hjá Ásu er:
"Football isn't just matter of life and death...it's so much more than that!"
hun hlustar á Ratatat og Bubba
Status: in a relationship with mistery guy
Kjósið Ásu í síma 900-1012


Ásta Árnadóttir 24 ára Akureyri (myspace.com/astaarna)
Áhugamál Ástu eru m.a. forvitni, prófalestur, sætir strákar og blóm.
Ásta elska Britney Spears og Las Vegas er draumastaðurinn hennar til að búa á.
Hún hlustar mikið á lagið "Heilinn minn" úr íslenska Euróvision.
Status: in a distance relationship
Kjósið Ástu í síma 900-1005

Björg Magnea Ólafs 19 ára Reykjavík (myspace.com/bjorgmagnea)
Áhugamál Bjargar eru m.a. going abroad, friends and dumping boyfriends.
Hun hlustar á leiðinlega tónlist segja vinir hennar.. dæmi: OK go
Status: about dumping one.. so SINGLE
Kjósið Björg í síma 900-1016


Hallbera Guðný Gísladóttir 22 ára Akranesi (myspace.com/hallberagisla)
Áhugamál Hallberu eru m.a. kók, kúlusúkk, píkuhár, Man.utd, sopar og snúningar.
Hun hlustar á Kim Larsen og sjálfa sig.
Status: klárlega SINGLE og síminn hjá henni er 868-4335 opin fyrir date-um
Kjósið Hallberu í síma 900-1011


Málfríður E Sigurðardóttir 23 ára Reykjavík (myspace.com/frida84)
Áhugamál Fríðu eru m.a. dansa, vinna titla, mála Pálu og brúnkukrem.
Hun hlustar mikið á alla tónlist en þó helst á Garðar Thor Cortes svo heitur
Málfríður er ekta 101 gella skiluru....
Status: in a relationship with a famous footballer
Kjósið Fríðu í síma 900-1004




Margrét Lára Viðarsdóttir 21 árs Vestmannaeyjum (myspace.com/mlv9)
Áhugamál ML eru frímerkjasöfnun, adda strákum, Orri og vera ein í skalló
Hun hlustar á JT, Leoncie og símhringinguna sína... framtíðardraumar eru :
að verða íþróttafréttamaður á RUV, taka við af Samma.
Status: SINGLE but talking to a few guys
Kjósið Margréti í síma 900-1009




Freysa Alexandersdóttir 26 ára Reykjavík (myspace.com/freyrale)
áhugamál freysu eru þolir ek leiðinlegar íþróttir og leiðindi almennt en
elskar sjálfa sig, myspace heiminn og Breiðholtið.
Hun hefur undanfarið verið að tapa á sprettinum fyrir leikm m.fl.kv og
líka í skallakeppnum. Keppnisskapið er þó mikið og einkennir Freysu.
Status: in a relationship with a former Valur footballer
Kjósið Freysu í síma 900-1020

Pála Marie Einarsdóttir 23 ára Hafnarfirði (myspace.com/palamaire)
Áhugamál Pálu eru m.a. fæðingar, draumar um fæðingar, sögur af fæðingum
börn almennt, hvernig börnin koma í heiminn og gaurar í hlýrabolum.
Pála vill ekki að fólk addi sér á myspacið nema það þekki hana enda er hun
svæðið harðlæst.
Status:
Kjósið Pálu í síma 900-1003

Rakel Logadóttir 26 ára Hafnarfirði (myspace.com/rakelloga)
Áhugamál Rakelar eru m.a "West" side story, regnbogalitirnir, nýjar
hárgreiðslur, túrverkir og handbolti í upphitun.
Rakel vill ekki gefa upp hvaða tónlist hún hlustar á.
Status: heldur betur in að relationship with West
Kjósið Rakel í síma 900-1007


Orrína Sigurðardóttir 28 ára Reykjavík (myspace.com/orrilakers)
Áhugamál Orrínu eru m.a. Spólukúr, Margrét, djamm og vitleysa, að vera mega
mössuð, brúnkukrem og MSN.
Orrína hlustar á alla tónlist sem hægt er að dansa við og er góðvinkna Sálarinnar.
Status: SINGLE
Kjósið Orrínu í síma 900-1028


Sara Sigurlásdóttir 22 ára Vestmannaeyjum (myspace.com/sarasigurlas)
Áhugamál Söru eru m.a. danskir dagar, föstudagskvöld, að vera með
sama brosið á öllum myndum og hrauna yfir senterinn í m.fl.ka.
Sara hlustar á alla tónlist sem spiluð er á Vegamótum.
Status: SINGLE plís einhver að hjálpa henni
Kjósið Söru í síma 900-1013


Sif Atladóttir 22 ára Hafnarfirði (myspace.com/sif_atla)
Áhugamál Sifjar eru m.a. litlir menn, að vera alls ekki á lausu, skjóta fast
elskast og sofa í húsi rétt hjá Hrafnistu í RVK.
Sif hlustar á Bjössa og ekkert annað öll tónlist deyr í samanburði við hann.
Status: greinilega in að relationship
Kjósið í Sif í síma 900-1002



Thelma Björk Einarsdóttir 17 ára Reykjavík (myspace.com/bje
Áhugamál Thelmu eru m.a. Ronaldinho, Tala ótrúlega mikið, vera hrókur
alls fagnaðar hvert sem hún fer, glansmyndir og náttla fótbolti.
Thelma hlustar ekki á tónlist þögnin er hljóðlát og hljóðið er yndislegt.
Status: SINGLE
Kjósið Thelmu í síma 900-1015


Opið er fyrir kosningu til kl. 00.01 í kvöld






























föstudagur, maí 04, 2007

Lengjubikars-Meistarar!!!! 

Í kvöld sigruðum við KR í úrslitaleik Lengjubikars kvenna með tveimur mörkum gegn einu. Við byrjuðum leikinn að miklum krafti og fengum strax gott færi á 2.mínútu en skutum framhjá af markteig. Fyrsta mark leiksins kom á 25.mínútu og var það einkar glæsilegt. Sif átti frábæra sendingu beint á kollinn á Margréti Láru sem skoraði með frábærum SKALLA nánast uppí markvinkilinn og staðan orðin 1-0 við mikinn fögnuð viðstaddra. KR ingar komust síðan betur inní leikinn og fengu þónokkur færi sem þær náðu þó ekki að nýta og staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Við byrjuðum seinni hálfleikinn að krafti og áttum þónokkur færi en mjög efnilegur markvörður KR inga sá við okkur í nokkur skipti. Annað mark leiksins kom síðan eftir mjög hratt og gott spil. Á 57.mínútu leiksins fengum við góða skyndisókn, Gugga greip boltann og sendi strax á Kötu sem átti frábæra sendingu inn fyrir vörnina á Margréti og þær Margrét og Nína voru báðar komnar í gegn, Margrét renndi boltanum á Nínu sem skoraði síðan og staðan orðin 2-0. Mjög vel útfærð skyndisókn! Eftir þetta opnaðist leikurinn tölvuvert og bæði lið fengu nokkur góð færi en náðu þó ekki að nýta þau, ber þá hæst þegar Sif Atladóttir átti þrumuskot í slánna eftir hornspyrnu. Á 75.mínútu náði KR að minnka muninn í 2-1 þegar Fjóla átti góða sendingu fyrir markið á Ólínu G. Viðarsdóttir sem skoraði með viðstöðulausu skoti í hornið. Nær komst KR ekki þrátt fyrir nokkrar góðar marktilraunir. Við fengum líka tvö góð færi í lok leiksins og skaut Margrét því miður framhjá í einu þeirra þegar hún var komin ein í gegn og í hitt skiptið náði markvörður KR að verja vel. Mikill taugatitringur var inná vellinum síðustu mínúturnar og náðum við illa að halda boltanum og fórum alltof mikið í háloftaspyrnur. Þrátt fyrir það náðum við að halda fengnum hlut og mjög sætur sigur var í höfn. Eftir leikinn fengum við þennan stórmyndarlega bikar og væna ávísun í verðlaun. Það er erfitt að taka ákveðna leikmenn út og má segja að liðsheildin hafi klárlega unnið í kvöld.
Næsti leikur er “meistarar, meistarana” við Breiðablik á Miðvikudagskvöld, meira um það síðar...
Liðið: Gugga, Pála, Ásta, Fríða, Guðný, Sif, Kata (Linda), Vanja (Hallbera), Nína, Rakel (Andrea) og Margrét Lára

This page is powered by Blogger. Isn't yours?


Go to ImageShack® to Create your own Slideshow