<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, júlí 28, 2008

Myndir frá stórafmæli DMLV 

Hérna koma myndir frá einkaljósmyndaranum okkar, Ragnheiði Ágústu Jónsdóttur úr afmæli júlíbarnanna Dóru Maríu Lárusdóttur og Margrétar Láru Viðarsdóttur en þær héldu upp á 23 og 22 ára afmælin sín með pompi og prakt í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda á föstudaginn síðastliðinn.

1.hluti
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LCKA

2.hluti
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LCTg

Njótið vel og takk fyrir frábært kvöld!!


þriðjudagur, júlí 22, 2008

HK/Víkingur - Valur í kvöld kl. 19:15 

Í kvöld munum við stúlkurnar etja kappi, að öðru sinni, við nýliðana í deildinni HK/Víking. Leikið verður á Víkingsvelli og hefjast leikar 19:15 stundvíslega. En til gamans má geta að fyrri leikur liðanna sem leikinn var í Egilshöll fyrr í sumar byrjaði MJÖG stundvíslega. En það var DML sem stimplaði sig inn í sumarið með marki á upphafsmínútum leiksins. Frábær heimkoma hjá stúlkunni sem er aðeins 2 dögum frá því að hafa séð vetrana 23.

Allir á völlinn í kvöld, þetta er í fyrsta skipti sem stór hluti af leikmönnunum okkar hafa stigið fæti á Víkingsvöll og vitum við fyrir víst að engin stig eru ókeypis á þessum velli svo búist er við hörkuleik.

Sjáumst!

þriðjudagur, júlí 08, 2008

Stjarnan - Valur Kl.19.15 í kvöld! 


Í kvöld fer fram síðasti leikur okkar í fyrri umferð Landsbankadeildar kvenna en hann er gegn Stjörnunni á gervigrasinu í Garðabæ.
Leikurinn hefst á slaginu 19.15 og hvetjum við alla til að mæta og styðja okkur til sigurs!
ÁFRAM VALUR!!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?


Go to ImageShack® to Create your own Slideshow