föstudagur, desember 28, 2007
Margrét Lára Viðarsdóttir íþróttamaður ársins!!!!!!!!
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona úr Val, er íþróttamaður ársins 2007. Þetta var tilkynnt fyrir örfáum mínútum á Grand hóteli. Margrét setti nýtt markamet í Landsbankadeild kvenna í sumar þar sem hún varð Íslandsmeistari með Valsliðinu.
Þá lék hún lykilhlutverk í íslenska kvennalandsliðinu sem náði góðum árangri á árinu.
Það voru að vanda samtök íþróttafréttamanna sem stóð að kjörinu en sigur Margrétar var sannfærandi.
Margrét Lára hlaut 496 stig. Í öðru sæti með 319 stig var Ólafur Stefánsson, handboltamaður hjá Ciudad Real. Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona, hafnaði í þriðja sæti.

Margrét, til hamingju með titilinn, þú hefur komið íslenskri kvennaknattspyrnu á hærra stig!!!!!!
Þín elskandi Valsfamilía, við erum fáránlega stoltar af þér!!!!

Myndir af íþróttamanni ársins - enjoy..
Comments:
Skrifa ummæli