<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, október 25, 2005

"Go back to Germany" eins og segir í laginu góða.... 

Síðan alveg að upplifa sinn dauðadaga?? Svona svipað og sunnudagurinn 16.október í lífi okkar...neinei smá grín, þetta var þvílík upplifun:) Enda eru ekki öll lið svona skemmtileg að þeim sé bara boðið á æfingamót í Germaníu að spila á móti nokkrum af bestu liðum heims, m.a Potsdam, Kolbotn, Brasilísku liði og fleirum. Það vita flestir hvernig leikurinn fór og sé ég ekki mikla ástæður til að ræða það e-h frekar annað en að við vorum áhorfendur að mjög svo skemmtilegum leik:) Nú er tímabilið búið og flestir mjög fegnir enda er tímabilið búið að vera mjög mjög langt en þetta Evrópuævintýri okkar var frábær upplifun og komumst við í 8.liða úrslit sem er frábær árangur. Við komumst að því að Berlín er þvílíkt flott borg og þar var allt morandi í búðum og mollum. Fórum á svona túristarúnt um borgina, við vildum reyndar bara sjá “the wall (a.k.a Berlínarmúrinn) and the mall” en fengum 2,5 klukkutíma keyrslu um Berlín og ekki alveg nógu langan tíma í verslunarmiðstöðinni.......því verður breytt í Janúar þegar við förum aftur!! Ég og Fríða keyptum síðan svona ógeðslega halloween búninga og hlupum um hótelið í svarta myrkri og vorum að hræða restina af liðinu, læðast inní herbergin þeirra og banka á hurðarnar, vil þó segja að Elín, Ásta, Beta, Erla og Unnar urðu hræddust, skulfu úr hræðslu..hahahaha...tekin... Fyndnasta atriði á öllum mínum fótboltaferli gerðist í þessum leik. Rut semsagt var að bjarga í horn alveg upp við endalínu og rann útaf vellinum og meiddi sig í leiðinni. Það var semsagt horn og Rut lá útaf í þvílíkum kvölum. Fríða segir þá við Ástu, “leikurinn heldur áfram af því að hún er útaf vellinum” og þá kallar ásta bara á Rut” Rut farðu inná völlinn”! og Rut mjakar sér svona inná völlinn á maganum (var með krampa í fótunum) og allir áhorfendurnir og leikmenn Potsdam náttla bara what? Og síðan erum við hinar alveg, Rut hvað ertu að gera og ásta aftur “ Rut farðu út af vellinum! Rut greyið mjakar sér aftur útaf, það voru allir í hláturskrampa, sko allir leikmenn inná vellinum og áhorfendur...kannski soldið svona had to be there dæmi en þetta var BRJÁLAÐ fyndið!!

Nokkrir molar úr ferðinni:
Elín: hei, ætlum við ekki að fara og sjá Kínamúrinn???
Þulur: Anja, Crowd: Mittag!, Þulur: Potsdam, Crowd: eins! Þulur: Reykjavik, Crowd: null, Þulur: Danke, Crowd: Bitte!! Þetta hljómar enn í mínum eyrum enda 12 sinnum í loftið með viðeigandi útfærslum...Við áttum þó þriðja markið, Margreta Laura Reykjavik
Elísabet Gunn við matarborðið, ég kom fyrst aftan að henni með svona stóra loðna dótarkönguló og lét á öxlina á henni og hún náttla öskraði en sá ekki hvað ég var með, síðan settist ég fyrir framan hana og lét hana á borðið án þess að hún sæi og lét köngulóna labba að matnum hennar (það var svona band úr henni og maður gat pumpað)þangað til hún sá köngulóna og fékk náttla móðursýkiskast!!hahah tekin aftur.hóst..
Tyggjófundurinn”Það mættu allir með tyggjó á fundinn fyrir leik til að pirra þjálfarann sem hefur einstaka fóbíu fyrir tyggjóum og hljóðið þegar fólk er að tyggja á fullu. Ákveðið var að gera smá leik úr þessu og spurt var liðið hver væri tilbúin til að tyggja fimm tuggin tyggjó úr öðrum fyrir 6000 kall, mér til mikillar undrunar vildi cirka 90% af liðinu gera þetta! Og þurfti að draga uppá, Beta litla tuggði semsagt fimm ógeðslega tyggjó og fær sinn sexþúsund kall!!! Man ekki meira at the moment...endilega hendið inn kommentum um fleiri fyndin atriði sem ég er örugglega að gleyma.. kveðja GG

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?


Go to ImageShack® to Create your own Slideshow